|
Lýsing
|
Sumarið 2010 gefst göngufólki tækifæri á að kynnast nýrri gönguleið, en þá opnast möguleikar á að ganga í kringum Kerlingarfjöll á 3 dögum, með gistingu í tveim litlum fjallaskálum á leiðini, skálanum Klakk við Suðausturhorn Kerlingarfjalla og skála í Kisubotnum við NA horn Fjallanna. Með þessu má skipta um það bil 50 KM leið í 3 dagleiðið, en gengið er um fjölbreytt landslag, bæði í og við fjöllin.
Sé gengið rangsælis úr Ásgarði þar sem hálendismiðstöðin stendur, þá liggur fyrsta dagleiðin í byrjun til suðvesturs um sandöldur að Hveradalahnjúk, þar sem velja má 3 leiðir:
a)Ganga í átt að Tind, skoða Kerlingu og síðan til austurs suður fyrir Ögmund
b)Ganga í átt að Mæni, þaðan í suðvestur um Sléttaskarð og milli Hattar og Ögmundar
c)Fylgja merktri gönguleið í Hveradali og þaðan yfir Kerlingarskyggni í Hverabotn og síðan í skarðið milli Ögmundar og Hattar.
Leiðir b) og c) liggja saman frá skarðinu milli Ögmundar og Hattar, að vaði yfir Kerlingará, þaðan sem merkt er gönguleið norðanvert við Grákoll að Klakki. Leið A fellur saman við leiðir B og C síðustu 4 Km þessarar dagleiðar.
Næsta dagleið er um austurhlið fjallanna, framhjá fjöllunum Klakk, Grákolli og að þeim stórbrotnum Kisugljúfrum, dagleiðinni lýkur í Kisubotnum, kyrrlátu dalverpi í framhaldi af Kisugljúfrum.
Síðasta dagleiðin liggur úr Kisubotnum og að norðurhlið Loðmundar og þaðan er hægt að ganga um athafnasvæði skíðaskálans í Fannborgarhlíðum og í Ásgarð.
Nánari leiðarlýsingu er að finna á þessum tengli
Göngukort (5Mb) er að finna á þessum tengli
Hafið endilega samband ef frekari upplýsinga er óskað.
|