rv. 020
Heiti Jökulhryggur/Keis - Snækollur
Flokkun Nokkuð krefjandi| ++ |
Tengingar Hægt að halda áfram suður yfir fjöllin eða halda áfram niður í Hveradali.
Upphaf Jökulhryggur/Keis Áfangastaður Snækollur
Byrjunarhæð 1050 m Merkt leið Nei
Lokahæð 1488 m Göngutími ca 2 klst
Hækkun ca 400m m Vegalend
Lýsing Leiðin yfir Fannborgarjökul

Á Keisinni, við enda bílvegarins stendur húsið Kastali, upphaflega byggt sem kaffiskúr fyrir nemendur skiðaskólans.

Þarna hefst gangan, en fyrst er fylgt slóða að Jökulhryggnum, og síðan eftir Wall Street, sem upphaflega var gangstígur sem myndaðist á tímum Skíðaskólans, en hefur síðan verið breikkaður, og er nú bílfær, en ekki er ætlast til þess að eftir honum sé ekið.

Þegar Wall Street sleppir tekur Fannborgarjökull við og skal stefnt á ofanverðar Bringurnar og þaðan er gengið í norðurhlíðum Vesturgnýpu, framhhjá Snót og en þar blasir göngustígurinn við upp Snækoll. (Sjá mynd). Þessi leið er greiðfær meðan vetrarsnjórinn lokar jökulsprungum, sem þó eru mjóar þarna, hinsvegar er vakin athygli á að ganga á jökli er alltaf varasöm vegna þess að sprungur geta leyst undir.

Fannborg - Snækollur

Til að forðast jökulsprungur á Fannborgarjökli, er hægt að ganga fyrst á Fannborga og þaðan á Snækoll, þessi leið er lengri, en ekki síðri þar sem af Fannborg er betra útsýni yfir Hveradali og NV af Kerlingarfjöllum.

Þegar ekið er upp Keisina er beygt til hægri upp að Jökulhryggnum, c.a. 300 M áður en komið er að Kastalanum.

Þar hefst gangan upp brattan jökulhryggin, slóðin er ógreinileg í fyrstu, en fljótlega verður hún greinilegri. Passa þarf að vera á hryggnum nálægt jökuljaðrinum. Þegar komið er upp í miðja hlíðina er beygt til hægri og gönguleið fylgt sem teygir sig í hálfhring í hlíðum Fannborgar og síðan upp á tindinn.

Í björtu veðri er þessi leið falleg, bæði vegna útsýnis yfir Hveradalina og eins vegna þess sjónarspils sem við manni blasir er landslag suðurlandsins verður allsráðandi á sjóndeildarhringnum.

Af Fannborg er fjallshryggnum síðan fylgt, framhjá Vesturgnípu og Snót, átakalítil ganga, en falleg í björtu veðri..
Hánípur
Hánípur heitir sá fjallgarður sem myndar norðurhlið Kerlingarfjalla, en í árbók FÍ árið 1942bls 17 - 18 segir: “Austurfjöll norðastan Hveradala. Ber þar mest á Hánípum (1478 m), en svo heitir langur kambur sem er klofinn í margar gnípur, borgir og eggjar hið efra.” ... “Er þar vestast öxl (1428 m) með þverhníptum hömrum norður í móti og jökli neðan undir. Heitir hún Fannborg” “Á miðri egginni er hæsti tindur Kerlingarfjalla, keilumyndaður hnjúkur 1478 m, oftast snævi hulinn, nema í snjóleysisumrum. Heitir hann Snækollur.

Og síðar “Norðaustur af Hánípum stendur Loðmundur (1432 m) og er þröngt jökulskarð á milli.
Fannborg
Þegar komið er að Kerlingarfjöllum að norðan eða vestan er Fannborg hvað mest áberandi, klettótt mjög hið efra en þakin jökli er neðar dregur. Fjallið hefur notið virðingar frá því að frumherjarnir hófu skíðakennslu á svæðinu og nefndu menn starfsemina eftir því, þótt nafnið Skíðaskólinn í kerlingarfjöllum væri þekktara manna á meðal., hefur nafnið þó verið hafið til virðingar hin seinni ár. Meðal hreystiverka er þess þótti vert að ræða meðal skíðamanna, voru þegar svo bar undir að fífldjarfir skíðamenn gripu til karlmennskunnar er upp á fjallið var komið og spenntu á sig skíðin og steyptu sér fram af hömrunum.

Snækollur

Öll hærri fjöll Kerlingarfjalla eru úr líparíti, sem oftast er ljósbrúnt og má segja að Snækollur falli vel að þeim lýsingum sem má finna í Árbók FÍ frá 1942, bls. 25: “Úr líparíti eru öll hæstu fjöllin. Bergið er ljósbrúnt að lit. Þar, sem til fast berg sést, er það ólagskipt með öllu. Líparítfjöllin eru skriðuorpin langleiðina upp til brúna. Skriðusteinarnir eru jafnir á stærð og hvassbrýndir. Eru þeir frá 10 – 20 cm. Að þvermáli flestir. Eins og títt er um líparítskriður eru þær brattar, halli þeirra allt að 42°.”

Snækollur er meðal bestu útsýnisstaða landsins, en þar sést til sjávar bæði til suðurs og norðurs í góðu skyggni

Leiðir af Snækolli

Þótt leiðir liggi ekki til allra átta af Snækolli, þá er hér bent á tvo möguleika til að lengja ferðina fyrir þá sem það vilja, en hægt er að fylgja fjallgarðinum áfram og ganga á Loðmund eða fara á næsta tind og þaðan til suðurs niður í Efri Hveradali og fylgja Ásgarðsá til norðurs í Hveradali þaðan sem örstutt er að bílastæðinu. Myndirnar tala sínu máli.

Ítarefni:
Fólk á Fjöllum, eftir Ara traust a Guðmundsson
Ábækur FI 1942 og 2004



<<Other routes