rv. 017
Heiti Gil Jökulfalls
Flokkun Auðveld ganga | + |
Tengingar Nei
Upphaf Brú á Jökulfalli Áfangastaður Fossrófur
Byrjunarhæð 660 m Merkt leið
Lokahæð 600 m Göngutími 4 klst
Hækkun - 60 m (lækkun) m Vegalend 8 km
Lýsing Leiðin skiptist í 2 áfanga:

a) Efri hluti, brú Jökulfalli - Blákvísl. Vegalengd um 3 km, göngutími um 1-2 klst.
Gengið er meðfram gili Jökulfallsins, frá brúnni niður að Blákvísl. Undir brúnni er fossinn Hvinur. Ryðst áin niður þrengsli drjúgan veg en breiðir heldur úr sér er kemur að Gýgjarfossi. Neðan hans fellur Blákvísl í Jökulfallið, og þar er aftur komið á akveginn.

b) Neðri hluti, Blákvísl - Fossrófur um 5 km, göngutími um 1½-2 klst.
Hægt er að halda áfram frá Blákvísl niður með gili Jökulfalls með flugvöllinn á hægri hönd. Hrikaleg gljúfur, hreiðurstæði heiðargæsa, flúðir og fossar fanga hugann á göngunni, sem lýkur í Fossrófum við veginn til Kerlingarfjalla.


<<Other routes