Velkomin á heimasíðu Kerlingarfjalla

Kerlingarfjöll eiga ekki sinn líka.

Ein af helstu náttúruperlum Íslands
Kerlingarfjöll eru ein af náttúruperlum landsins. Þar fara saman stórkostlegt landslag, fjölbreytt og fróðleg jarðfræði og síðast en ekki síst samspil jökla og jarðhita, gróðurs og gróðurleysis og ótrúleg litadýrð. Öllu þessu gleymir enginn sem upplifir fagran dag í þessari einstöku náttúruperlu.

Vissir þú..
...að í boði eru hús sem rúma frá 3 til 16 manns
...fært er á öllum bílum í Kerlingarfjöll á sumrin.
...að Hveradalir í Kerlingarfjöllum eru eitt stærsta háhitasvæði Íslands
...að það er GSM samband í Kerlingarfjöllum
...að á þessum Flickr tengli eru mörg hundruð glæsilegar myndir úr Kerlingarfjöllum

Í Kerlingarfjöllum finna allir eitthvað við sitt hæfi.




:: Nýtt bókunarkerfi og Facebook síða (12/02/2010)
Nú er formlega búið að taka í notkun nýtt bókunarkerfi og því hægt að panta gistingu á vefnum. Þetta er mikil framför ...

:: Hinn árlegi stórdansleikur Fjallavinanna 26. febrúar 2010 (11/02/2010)
Kerlingarfjallaballið nálgast og DÚAGGÍ á það! Hver man ekki eftir Dúaggí, Kokknum og öllum hinum gömlu ...

:: Hringbrautin verður til - ný stórskemmtileg gönguleið (04/02/2010)
Sumarið 2010 gefst göngufólki tækifæri á að kynnast nýrri gönguleið, en þá opnast möguleikar á að ganga í kringum Kerlingarfjöll ...