Nýr vefur Kerlingarfjalla kominn í gagnið. (25/11/2005)
Á síðustu árum hefur verið unnið markvisst að breytingum og uppbyggingu á útivistarsvæðinu í Kerlingarfjöllum. Öll áhersla nú er lögð á almenna útivist og fjallamennsku ásamt því sem aðstaðan í húsunum hefur verið bætt til muna.
Nýr vefur lítur nú dagsins ljós og á næstu vikum verður unnið í því að bæta inn myndum og enn frekari upplýsingum. Ef þú átt skemmtilega mynd eða myndir, sem þú værir til í að lána á vefinn, þá endilega sendu myndina á info@kerlingarfjoll.is og láttu fylgja með einhverjar upplýsingar um hana/þær.
Hafir þú hefur einhverjar tillögur að breytingum eða efni á vefnum þá endilega láttu okkur vita.
Kveðja
Nefndin 
|