Opið aðra hverja helgi eftir áramót (16/11/2005)

Ákvörðun hefur verið tekin um að hafa opið í Kerlingarfjöllum aðra hverja helgi nú í vetur.

Eftir áramót verður allavega opið um eftirfarandi helgar í Kerlingarfjöllum: 27.-29. jan., 10.-12. febr., 24.-26. febr., 10.-12. mars, 24.-26. mars, 7.-9. apríl og 14.-16. apríl.
Við verðum á staðnum og sjáum um að húsin verði heit og þægileg. Hægt verður að kaupa eldsneyti. Gistingu þarf að panta fyrirfram ef gisting á að vera örugg.

Ef fólk er á ferðinni utan opnunartíma þá er hægt að leigja stök hús. Kynding á þessum tímum er með gasi.