Heita laugin í Kerlingarfjöllum gerir stormandi lukku. (21/07/2010)
Það er fátt sem jafnast á við það að dorma í heitri laug eftir hressandi göngutúr.
Í vor var lokið við gerð náttúrulaugar í Hveradölum, sem eru dalir á háhitasvæðinu í Kerlingarfjöllum. Laugin er skammt frá þar sem bílvegurinn endar, en ofan í gljúfri Ásgarðsár.
Laugin er hlaðin í gömlum lækjarfarvegi og í hana rennur um það bil 42°C heitt vatn.
Sjón er sögu ríkari - láttu sjá þig í Kerlingarfjöllum.
Heimsókn í laugina verður væntanlega fastur liður í göngu um þetta fallega og einstæða háhitasvæði.

Heita laugin í Kerlingarfjöllum
 | | |
|