Konur sækja kraft til fjalla -18.-20. júní 2010. (08/06/2010)
Kvennaferð í Kerlingarfjöll
á sumarsólstöðum 18.-20. júní 2010
Hinn rauði þráður ferðarinnar er krafturinn sem býr í konum og náttúrunni og leiðir til að styrkja þessi tengsl.
Við göngum saman úti í magnaðri náttúrunni, gerum yoga, hugleiðum og njótum birtunnar.
Dulmögnuð fegurð og litadýrð Kerlingarfjalla lætur enga konu ósnortna og töfrar náttúrunnar umvefja okkur.
Leiðbeinandi er Anna Dóra Hermannsdóttir yogakennari og leiðsögumaður en hún hefur haldið fjölda námskeiða fyrir konur þar sem hún fléttar saman yoga, hugleiðslu og notkun jurta til heilsubóta.
Verð: 35.000.- innifalið námskeiðsgjald, gisting og heilsufæði.
Nánari upplýsingar og skráning:
Hildur Harðardóttir
netfang: hhardard@gmail.com
Anna Dóra Hermannsdóttir
sími: 894 7788
netfang: annadorah@gmail.com
*** *** ***
Konur í Kerlingarfjöllum á sumarsólstöðum 2010
Kæru konur -
Um leið og við bjóðum ykkur innilega velkomar á vit ævintýranna í Kerlingarfjöllum sendum við lista yfir útbúnað þann sem taka þarf til helgarinnar.
Íslenska sumarið á fjöllum er sannarlega fullt af töfrum en allra veðra er ætíð von og búum okkur því samkvæmt því. Það er betra að hafa meira með sér en minna og lopapeysan og síðbrókin á hvergi betur við en á hálendinu, ásamt vettlingum, húfu og ullarsokkum.
Við getum alltaf látið okkur líða vel svo lengi sem okkur er hlýtt:)
Dagskráin okkar mun mótast af náttúruöflunum, útiveran þeim mun meiri ef veður er gott, en hlýja og skjól innandyra ef þannig viðrar.
Listi yfir útbúnað:
svefnpoki
koddi/púði
teppi/stórt sjal
inniskór
gönguskór
lítill bakpoki/dagpoki
hlífðarföt/regnföt/ull/flís
sokkar til skiptanna
legghlífar
vettlingar og húfa
inniföt
yogamotta – má vera tjalddýna
handklæði
baðföt
sólarvörn
sólgleraugu
vatnsbrúsi/hitabrúsi ef þið viljið hafa heitt að drekka um daginn
dagbók til að skrá upplifanir og drauma
myndavél
lítill sjónauki
flugnanet
eyrnatappar og augnskjól (fyrir svefnstygga)
léttir vaðskór eða pokar til að setja yfir skó
göngustafir
plástur/hælsærisplástur
vasahnífur (til að safna jurtum)
Athugið að gallabuxur og annar bómullarfatnaður á ekki við á fjöllum!
Og svo komum við allar með opinn huga, tilbúnar að mæta því óvænta...
Með kærum kveðjum,
Anna Dóra og Hildur
|