Jeppaferð með Útivist: Leyndarmál Kerlingarfjalla 28. - 30. ágúst (21/08/2009)
Útivist stendur fyrir helgaferð helgina 28. - 30. ágúst undir heitinu Leyndarmál Kerlingarfjalla.
Dagskráin er eftirfarandi:
Brottför: kl. 19:00
Verð: 11.000 kr.
Félagsverð: 9.000 kr.
Nr. 0908JF02
Helgarferð í Kerlingarfjöll og ekið um nánasta umhverfi fjallanna.
Laugardaginn er ekinn hringur í kringum Kerlingarfjöllin. Ekið norður fyrir fjöllin um Illahraun, farið í Kisubotna og Kisugljúfur skoðuð. Þá er haldið áfram suðurfyrir fjöllin og komið við hjá Klakk og síðan stoppað hjá Kerlingunni, klettadrang í vestanverðum fjöllunum. Fyrir kvöldverð gefst tími til styttri gönguferða um nágrennið. Um kvöldið verður kvöldvaka að hætti Kerlingarfjalla, enda afbragðs aðstaða í aðalbyggingunni. Heimferð um Leppistungur. Haustferð sem hentar jafnt breyttum sem óbreyttum jeppum.
Fararstjórar eru Snorri Ingimarsson og Friðrik Halldórsson. 
Related link: http://www.utivist.is
Back
|