Fært á öllum bílum í Kerlingarfjöll. (08/07/2009)

Nú er fært á öllum bílum í Kerlingarfjöll, þar sem búið er að brúa bæði Fossrófurnar og Blákvíslina. Þar með eru allar ár og lækir á afleggjaranum brúuð. Þar fyrir utan hafa verið gerðar verulegar endurbætur á veginum.