Konur í Kerlingarfjöllum - Sumarsólstöður 2009 (05/04/2009)
Sumarsólstöðuhelgina 19. – 21. júní er námskeið fyrir konur í Kerlingarfjöllum.
Hinn rauði þráður námskeiðsins er krafturinn sem býr í okkur konum og náttúrunni og leiðir til að styrkja þessi tengsl.
Við göngum saman úti í magnaðri náttúrunni, gerum yoga og hugleiðum, finnum jurtir sem hafa í aldanna rás verið nýttar til matar og lækninga og njótum birtunnar.
Leiðbeinandi á námskeiðinu er Anna Dóra Hermannsdóttir yogakennari og leiðsögumaður en hún hefur haldið fjölda námskeiða fyrir konur þar sem hún fléttar saman yoga, hugleiðslu og notkun jurta til heilsubóta. Hún hefur kennt yoga í fimmtán ár og starfar sem leiðsögumaður fyrir íslenska og erlenda ferðamenn
Anna Dóra rekur heilsuferðaþjónustu á Klængshóli í Skíðadal og Yogasetur á Húsabakka í Svarfaðardal.
Dagskrá (ekki fullmótuð):
• Föstudagur 19. júní kl. 18:00 er mæting í Kerlingarfjöllum.
Eftir kvöldverð yoga úti í náttúrunni og hugleiðsla fyrir svefninn.
• Laugardagur 20. júní:
Morgunyoga kl. 8:30 og eftir góðan morgunverð höldum við á vit æfintýranna í
fjöllunum, gangandi hugleiðsla (walking meditation), jurtir fyrir konur,
yoga og konur.
Um kvöldið göngum við saman út í björtustu nótt ársins og upplifum
kyngimagnaðan kraft náttúrunnar.
• Sunnudagur 21. júní, sumarsólstöður 2009
Morgunyoga kl. 8:30 og eftir nærandi morgunverð förum við í góða göngu með
hugleiðsluæfingum og yoga áður en við höldum til byggða endurnærðar á
líkama og sál.
Þátttakendur taki með sér svefnpoka, góða gönguskó, útiföt, lítinn bakpoka, yogamottu/teppi, dagbók til að skrá upplifanir og drauma, baðföt og handklæði.
Verðið er kr 35.000, en innifalið er gisting 2 nætur í svefnpokaplássi, námskeiðsgjald, málsverðir eins og stillt er upp á dagskránni ásamt því að hádegismatur og nesti er innifalið.
Nánari upplýsingar gefur og við pöntunum tekur Hildur Harðardóttir, hhardard@gmail.com. Staðfestingargjald, kr 5.000 greiðist fyrir 01.06, inn á reikn: 0101 26 550764, kt 550764 0169.
Related link: http://www.skidadalur.is
Back
|