Snjósleðamótið 2009 (19/03/2009)
Snjósleðamótið 2009 verður haldið helgina 26. til 28. mars.
Fyrirkomulag er með svipuðu móti og fyrri ár en sleðamenn koma á föstudagskvöldi eða laugardag.
Laugardaginn verður nágrennið skoðað undir stjórn og leiðsögn reyndra sleðamanna, en ávallt er eitthvað að sjá í nágrenninu.
Laugardagskvöldið er sameingilegur kvöldverður, en á matseðlinum verður valið lambakjöt frá Gæðafæði, með fersku viðbiti.
Verðið er 7000 Kr pr mann. Páll Gíslason sér um bókanir og verður með staðarumsjón þessa helgi. Nú þegar hafa borist allmargar pantanir og eru menn hvattir til að panta hið fyrsta
Gjaldið skal greiðast inn á reikning 0101 26 550764, kt: 550764 0169, eigandi Fannborg ehf. Og skal greiðsla innt af hendi eða um hana samið við Pál sem allra fyrst
Áður en menn greiða þá þarf að liggja fyrir staðfest bókun
Bókanir sendist á netfangið pg@pg.is eða í síma 664 7000.

|