Vélsleðamótið 2008 - nánari upplýsingar (17/02/2008)

Snjósleðamótið 2008 verður haldið hegina 29 feb til annars mars.

Sem fyrri ár þá opnum við húsin fyrir snjósleðamönnum helgina um mánaðarmótin febrúar mars.

Fyrirkomulag er með svipuðu móti, sleðamenn koma á föstudagskvöldi eða laugardag.

Laugardaginn verður nágrennið skoðað undir stjórn og leiðsögn reyndra sleðamanna, en ávallt er eitthvað að sjá í nágrenninu.

Laugardagskvöldið er sameingilegur kvöldverður, en á matseðlinum verður valið lambakjöt frá Gæðafæði, með fersku viðbiti.

Verðið er 6000 Kr pr mann. Páll Gíslason sér um bókanir og verður með staðarumsjón þessa helgi. Nú þegar hafa borist allmargar pantanir og eru menn hvattir til að panta hið fyrsta

Gjaldið skal greiðast inn á reikning 0101 26 550764, kt: 550764 0169, eigandi Fannborg ehf. Og skal greiðsla innt af hendi eða um hana samið við Pál fyrir þriðjudagskvöldið 26 febrúar.

Áður en menn greiða þá þarf að liggja fyrir staðfest bókun

Bókanir sendist á netfangið pg@pg.is eða í síma 664 7000.