Vetrarmót vélsleðamanna 2007 (22/02/2007)

Nú nálgast vélsleðamannamótið í Kerlingarfjöllum en það verður fyrstu helgina í mars.

Mótið er haldið í samstarfi við Landssamband Íslenskra Vélsleðamanna, en Fannborg sér um húsnæði og kvöldverð á laugardsgskvöldið, eins og venja hefur verið. Gjaldið er 5.000 kr per mann.

Þegar þetta er skrifað, 22.02 er hálendið alhvítt að sjá, en snjór ekki þykkur, þó er talið vel fært á sleðum um Kjöl, en við bendum mönnum á ða fróðlegt er að fylgjast með snjó á vefmyndavél Vegagerðarinnar á Hveravöllum, sem finna má á heimasíðu þeirra.

Umsjón á staðnum er í höndum Hans Kristjárnssonar, S: 821 9833, tölvupóstfang: hans@krt.is





Related link:
http://www.liv.is

Back