Ferðafélagið býður upp á ferðir í Kerlingarfjöll (06/06/2006)

Ferðafélag Íslands býður í sumar upp á gönguferðir í Kerlingafjöll þar sem gengið verður um einstakt svæði Kerlingafjalla, meðal annars á Loðmund, Vestugnípur, Snækoll og Fannborg. Einnig verður gengið í Hveradali.

Um er að ræða helgarferðir þar sem farið er með áætlunarferð Hópferðamiðstöðvarinnar um Kjöl og til Kerlingafjalla, þar sem gist verður í tvær nætur og farið í gönguferðir um svæðið með leiðsögn.

Boðið er upp á ferðir sem hér segir:
16. – 18. júní,
7. -9. júlí og
18. – 20. ágúst.

Verð í ferðinar er kr. 16.000 / 18.000

Innifalið: Ferðir, gisting (uppábúin rúm) og fararstjórn.
Hægt er að kaupa mat á staðnum.





Related link:
http://www.fi.is/birta_vidburd.asp?id=669&CID=228

Back