Aðstaðan:
Þegar ekið er inn Ásgarðinn er gamla Ferðafélagshúsið til hægri en til vinstri er ekið er meðfram Nýpum 1 til 5, inn á bílastæði við aðalbygginguna.

Í aðalbyggingunni er snyrtiaðstaða, veitingasalur með vínveitingaleyfi og svefnaðstaða fyrir allt að 28 manns.

Af bílastæðinu er hægt að aka á tjaldstæði sem er á eyrum Ásgarðsár. Í dalnum, innan aðalhússins eru 5 hús, Herragarður, Breiðagerði, Brekkukot, Veisa og Gónhóll. Niðri í dalnum er hús með sturtuaðstöðu til afnota fyrir gesti. Einnig lítil díselrafstöð, en á sumrin er rafmagn er að mestu framleitt í Sælufossvirkjun, sem er í eigu Fannborgar.

Á svæðinu er hestagirðing fyrir þá sem koma á hestum.

Kerlingarfjallasvæðið hefur verið skipulagt og er tillaga að aðalskipulagi til umræðu hjá Hrunamannahreppi.

Húsakosturinn í Kerlingarfjollum
Nýpurnar
Húsin í Kerlingarfjöllum


Gistiaðstaða:

Bygging Lýsing Mynd
Leiðarlýsing / The route to KerlingarfjollAf Kjalvegi liggur leiðin í Kerlingarfjöll yfir 2 óbrúuð vatnsföll: Fossrófulæk, sem er lítill og meinlaus lækur, sem er merktur með skilti fljótlega eftir að komið er inn á veginn í Kerlingarfjöll. Næst kemur Blákvísl, nokkuð stærri, en grunn með föstum botni og hættulaus yfir að fara, ef ekið er varlega, þar sem botninn er nokkuð grófur. Hún er líka merkt með skilti. Næst er farið yfir Jökulfallið á brú, og að lokum kemur að Ásgarðsá, sem einnig hefur verið brúuð. Þegar yfir Ásgarðsána er komið, er ekið upp allbratta brekku, og síðan eftir malarási með gili Ásgarðsárinnar á hægri hönd. Senn opnast sýn í Ásgarð, þar sem Fannborg hefur byggt upp aðstöðu sína.
Almennt/General infoÁ Kerlingarfjöllum eru 12 hús í útleigu fyrir litla og stóra hópa. Heildargistirými er um 90 manns en auk þess er mikið pláss á tjaldsvæðinu.
Aðalskáli / Main buildingHúsið er á 3 hæðum: Á kjallara er inngangur og salernisaðstaða. Á 1. hæð er veitingastaður fyrir allt að 80 manns. Á risi er setustofa og svefnpokapláss fyrir 28 manns. Veitingasalan er opin frá 15. júní til 31. ágúst
BreiðagerðiHús með 4 tveggja manna herbergjum og salerni með hverju. Einungis uppábúin rúm.
BrekkukotInngangur í kjallara, þar sem er fatageymsla og eldhúskrókur og salerni. Á hæðinni er setustofa með 2ja manna rúmi og 2 bekkjum. Einnig svefnherbergi fyrir 2. Einungis leigt með uppábúnum rúmum. Getur hýst allt að 6 manns.
VeisaHús með forstofu m/salerni og setustofu með 1 tvíbreiðu og 1 einbreiðu rúmi. Einungis selt með uppábúnum rúmum.
GónhóllLítill skáli með 3 herbergjum. WC og lítið eldhús. Svefnloft fyrir 2. Einungis leigt með uppábúnum rúmum.
HerragarðurÍ Herragarði er ágætur matsalur og eldunaraðstaða fyrir hópa. Salerni og handlaugar
La PlataSkáli sem er í brekkunni fyrir ofan öll húsin, þ.e. þegar ekið er upp í fjall. Þarna eru 2 2ja manna herbergi og salerni. Einungis leigt með uppábúnum rúmum
Nípa 1A-hús með 2 herbergjum, hvort með einbreiðu og tvíbreiðu rúmi, salerni, rafhitun og lýsingu. Einungis leigt með uppábúnum rúmum
Nípa 2A-hús með 1 tvíbreiðu og 2 einbreiðum rúmum, salerni, rafhitun og lýsingu. Leigt með uppábúnum rúmum.
Nípa 3A-hús með 1 tvíbreiðu og 2 einbreiðum rúmum, salerni, rafhitun og lýsingu. Leigist með uppábúnum rúmum.
Nípa 4A-hús með svefnpokaplássi fyrir 8 í kojum og 2 á svefnlofti, salerni, rafhitun og lýsingu.
Nípa 5A-hús með svefnpokaplássi fyrir 8 í kojum og 2 á svefnlofti, salerni, rafhitun og lýsingu.
Sælugerði / Siggi's houseSetustofa, eldhús, salerni og svefnaðstaða á efri hæð. Svefnaðstaða fyrir 5-7
TjaldsvæðiÁ tjaldsvæðinu er pláss fyrir tjöld og tjaldvagna. Rennandi vatn og salerni. Sindrandi árniðurinn svæfir jafnvel hörðustu vökustaura. Ekki er þörf á að bóka gistingu á tjaldsvæðinu fyrirfram.
Annað/Other informationÖnnur aðstaða í Kerlingarfjöllum Nei
BaðhúsHeitar sturtur.
KastaliHús á bílastæðinu uppi við Fannborg. Tilvalið sem skjól og til að nota sem grunnbúðir þegar gengið er á fjöllin
Gamla F.Í. húsiðGamli Ferðafélagsskálinn má muna sinn fífil fegri. Húsið er hryggbrotið og í mikilli niðurníðslu. Í framtíðinni verður reistur þarna skáli sem á að hýsa hópa ferðamanna.
SpítaliGamalt hersjúkrahús sem staðsett er á sléttunni norðan við fjöllin. Hefur verið notað sem geymsla og aðstaða fyrir ferðamenn sem þurfa að komast í skjól til viðgerða á bílum eða snjósleðum. Nei
Valdastóll - í einkaeiguÍ einkaeigu Nei
Eyfells #1 - í einkaeiguÍ einkaeigu Nei
Eyfells #2 - í einkaeiguÍ einkaeigu Nei
The hot poolByggð hefur verið heit laug í Hveradölum. Laugin er staðsett í gömlum árfarvegi rétt neðan bílastæðisins. Í laugina rennur um +42°C heitt vatn. Fátt er betra en að dorma í heitri laug eftir dag á fjöllum.

Annað:

:: Allt húsnæði er lýst og hitað með rafmagni frá Sælufossvirkjun, sem er í Ásgarðsá um 400 m frá byggingunum

:: Skammt frá aðalyggingunni er sturtuaðstaða sem er opin fyrir gesti.

:: Í Kerlingarfjöllunum eru allmargar merktar gönguleiðir.

:: Í Ásgarði er hestagirðing með rennandi vatni fyrir allt að 150 hesta.

:: Starfsmenn geta gefið hugmyndir um gönguferðir. Eins getum við bent á menn sem gjörþekkja svæðið og gætu tekið að sér leiðsögn og fararstjórn.